Ozone 2-Wheel 40L ferðataska á hjólum
49.990kr
Vörunúmer: 10006935 Blk
Vönduð 40 lítra farangurstaska á hjólum. Ozone ferðataskan er á tveimur hjólum og með útdraganlegt takkalaust T-laga handfang sem býður upp á þægilega notkun og auðvelda stýringu. High Road LT undirvagninn er styrktur með ofurléttri álgrind og með handföng bæði að ofan og neðan. Þá gefur U-laga opnunin góðan aðgang að aðalhólfinu svo auðvelt er að pakka í og úr. Í Ozone töskunni er líka renndur vasi að ofan, renndur vasi að framan og gott innra skipulag með ólar að innanverðu til að þjappa saman farangrinum. Travel Sentry ID frá Osprey fylgir með öllum Ozone töskunum en það er auðkenni til að hjálpa þér að endurheimta töskuna ef hún týnist. Taskan er gerð úr endingargóðu, endurunnu bluesign® vottuðu efni.
- Þyngd: 2.3 kg
- Stærð: 55Hx 35Wx 23D
- Hægt að taka með sem handfarangur í flug skv. EU reglum um hámarksstærð handfarangurs
- Fer eftir flugfélagi
- Efni: bluesign® approved 210D recycled high tenacity NanoFly nylon, PFC/PFAS-free DWR
- 40L
- High Road LT álgrind
- Takkalaust T-handfang
- Læsanlegir rennilásar á aðalhólfi
- Gott aðgengi að farangri með stórum U-laga rennilás
- Eitt handfang á hlið
- Gott innra skipulag
- Ólar að innanverðu til þess að þjappa saman farangrinum
- Innri vasar úr netaefni (fyrir smáhluti)
- Travel Sentry ID - til að auðkenna töskuna ef hún týnist
- Sterkbyggður YKK EYL rennilás