GG Sport ehf kt 490320-1640, Smiðjuvegi 8, 200 Kópavogi, áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir að pöntun berst. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður GG Sport hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. GG Sport ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá GG Sport til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Verð á vöru og sendingakostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk að undanskildum þurrmat sem er með 11% vsk. Ef pantað er í vefverslun fyrir kl.12 á daginn fer pöntunin í póst samdægurs, annars næsta virka dag. Ef pantað er eftir kl.12 á daginn fer pöntunin í póst næsta virka dag að síðustu. Ef upphæð pöntunar er yfir kr. 10.000,- er sendingarkostnaður frír fyrir kaupanda. Ef upphæð pöntunar er undir kr. 10.000,- fer upphæð sendingarkostnaðar eftir sendingarmáta. Hægt er að velja á milli þess að fá sent á pósthús eða heim (á þeim svæðum sem Pósturinn sendir heim) og er sendingarkostnaður 700 kr. ef sent er á pósthús, ef sent er heim er sendingarkostnaður 900 kr. Þegar um stærri/þungar vörur er að ræða er sendingarkostnaður greiddur af viðtakanda, þetta á við um t.d. kajaka, skíða- og brettapakka, tjöld og Osprey Poco barnaburðarstólinn.
Að skipta og skila vöru
Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, ef viðkomandi vara er á útsölu eða á sértilboði við vöruskil þarf að framvísa kvittun til þess að sýna fram á upphaflegt verð vörunnar. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan gildir í fimm ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Ef um er að ræða útsöluvöru sem er að hætta í sölu og/eða er merkt með miða þess efnis fæst henni ekki skipt eða skilað.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðir GG Sport allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Trúnaður
Það er öruggt að versla á www.ggsport.is. Greiðslur með greiðslukortum fara fram í gegnum örugga greiðslusíðu Valitor. Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.