Coleman MACKENZIE 6
178.990kr
Vörunúmer: C-2000033762

Mackenzie 6 blackout tjaldið frá Coleman er vandað og rúmgott sex manna fjölskyldutjald.
Tjaldið hentar frábærlega fyrir útilegur í íslenskri veðráttu, en tjaldið er vatnshelt og sterkbyggt. Þetta er tilvalið tjald fyrir stórar fjölskyldur sem vilja hafa nóg pláss, þar sem svefnrýmin eru þrjú (2+2+2) en hægt er að opna á milli tveggja rýma þannig að röðunin verður 4+2.
Í svefnrýmum er sérstök Blackout Bedroom filma sem útilokar 99% af sólar- og dagsljósi frá svefnrýmunum - en það hentar okkur gríðarlega vel hér á landi þar sem sumarnæturnar eru bjartar og langar.
Í tjaldinu öllu er UV-Guard tækni sem veitir SPF50 vörn gegn útfjólubláum geislum sólar, auk þess sem það temprar hitastigið í tjaldinu.
Í tjaldinu er þétt og gott flugnanet sem heldur úti óværum eins og t.d. lúsmýi.
Stærð grunnflatar: 600 x 315cm (18,9m2)
Hæð: 217cm
Svefnrými 1: 215 x 280cm (rými er hægt að skipta í tvennt)
Svefnrými 2: 210 x 140cm
Vatnsheldni: 4500mm
Efni: Polyester efni sem andar vel
Límdir saumar
Pökkunarstærð: 80 x 40 x 40 cm
Þyngd: 35.5 kg
Stærð: 18.9 m2 (svefnálma 8.8 m2, fortjald 10.1 m2)
Fjöldi: 6. Herbergi: 3


