Rogen þurrgalli
97.990kr
Vörunúmer: 13188-387
Rogen þurrgallinn frá Palm er frábær í sjó- og vatnasport eins og paddleboard, SOT kajakróður, rafting eða á kanó.
Í Rogen gallanum færð þú allt sem þú þarft í þurrgalla - vandað fjögurra laga efni sem andar vel, YKK rennilás að framan þar sem farið er í gallann, neoprene skálmar og hálsmál og áfastir sokkar.
Rogen þurrgallinn er þægilegur og veitir þér þann lúxus að geta verið í því undirlagi sem þér hentar hverju sinni undir gallanum.
Efni: 100% nylon (PU húðað) XP fjögurra laga endurunnið efni með 5.000g/m2/24hr öndunargetu og 25000mm HH vatnsheldni.
Þyngd: 1256g (stærð L)
Umhirða: Hreinsið með hreinu vatni eftir notkun og hengið til þerris. Má þvo í vél á 30°.
Sjá stærðartöflu að ofan.
