0
Hlutir Magn Verð

"Talon 33" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Talon 33 thumb Talon 33
Talon 33 thumb Talon 33

Talon 33

38.990kr

Vörunúmer: 10006777 BCGrey

- +

Talon 33 er ný útgáfa af hinum sívinsæla Talon göngubakpokanum frá Osprey! Tvær ísaxafestingar með teygjustrappa til að festa ísaxarnir betur og strappar á hliðum til að þjappa pokanum vel saman. Nú með uppfærðu kerfi til að stilla bakið. Bakið hefur verið uppfært með nýju AirScape™, með þykkari fyllingu (e. foam) til að fá betri stuðning við bak og mjóbak ásamt að tryggja góða öndun í baki. Stillanleg hæð á axlarólum gerir þér kleift að stilla pokann eftir þínum þörfum. Sér vasi fyrir vatnspoka hjálpar þér að passa upp á vökvabúskapinn. Bakpokinn er gerður úr bluesign vottuðu endurunnu efni ásamt Ribstop áferð sem hindrar að langar rifur myndist í efninu ef ske kynni að gat komi á efnið. Sama hvert ferðinni er heitið er Talon léttur og áreiðanlegur ferðafélagi.

  • 33L
  • AirScape™ rifflað bak til að tryggja góða öndun
  • Stillanleg hæð á axlarólum
  • Vasi úr teygjuefni á axlaról
  • Stillanlegt AirScape™ bak tryggir góða öndun í baki sem streymir niður bakið og út í hliðarnar. 
  • Stillanleg brjóstól með neyðarflautu
  • Strappi til að þjappa pokanum saman að ofanverðu
  • Hliðarvasar og vasi að framan úr teygjuefni
  • Endurskin bæði framan og aftan á poka
  • Renndir vasar á mjaðmaólum
  • Engir hliðarsaumar á mjaðmaólum
  • Festing fyrir blikkljós
  • Festing fyrir lykla inní pokanum
  • Renndur vasi á topploki
  • Renndur innri netavasi í topploki
  • Festingar fyrir ísaxir
  • Stow-on-the-go™ festingar fyrir göngustafi
  • Vatnspokinn geymist fyrir utan aðalhólfið sem gerir áfyllingu mun auðveldari
  • Þyngd: 1,26 kg
  • Stærð (l x b x d): 68 cm x 30 cm x 31 cm
  • Efni: bluesign® vottað 100% endurunnið 100D efni með Ribstop áferð. Efnið hefur verið meðhöndlað með vatnsfráhrindandi efni (DWR), laust við PFAS.