Skíðapakki fyrir byrjendur - dömu
131.970kr
105.576kr

Svigskíðapakki fyrir dömur. Pakkinn inniheldur Blur 76 svigskíði með bindingum, BFC 75 svigskíðaskó og Power Alu skíðastafi.
Blur 76 dömuskíðin frá K2 eru hönnuð fyrir hraða og stöðugleika í skíðabrekkunum. Blur 76 skíðin eru góð í svigið og standa sig vel í öllum færum.
M3 10 Compact Quikclik bindingar fylgja með skíðunum.
Stærðir: 142, 149, 156, 163, 170
Getustig: Byrjendur, miðlungs
Mælingar: 120-76-109
Kyn: Kvennaskíði
Þyngd: 1450g (í stærð 163)
Radíus: 12.7 @ 163
BFC 75 svigskíðaskórnir eru hannaðir fyrir konur sem eru að stíga sín fyrstu skref í skíðasportinu. Skórnir eru með "cushfit" fóðrun sem gerir þá mjúka og þægilega. Auðvelt er að fara í og úr skíðaskónum.
Breidd: 103 mm
Þyngd: 1676g @ 24.5
Efni: Cushfit
Stífleiki: 75
Gripwalk sóli
Liner: Cushfit Comfort
Power Alu skíðastafirnir frá K2 eru einfaldir og þægilegir skíðastafir, sem henta sérstaklega vel fyrir byrjendur. Handfang stafanna er með þægilegum svampi, skaftið er úr áli.
