Prodigio Pro dömu
34.990kr
Vörunúmer: ZFRS101W00B02 WMBlue
Prodigio Pro hlaupaskórnir frá La Sportiva eru afkastamiklir utanvegahlaupaskór sem hannaðir eru fyrir ultramaraþon, fjallahlaup og hlaupara sem vilja ná fram sínum allra besta árangri í löngum hlaupum.
Prodigio Pro er skórinn fyrir þig ef þú vilt hlaupa hraðar, lengra og af meira öryggi í krefjandi aðstæðum.
XFlow Speed™ miðsólinn í skónum skilar frábærum orkuskilum og gefur góða dempun. Þú nærð lengra í hverju skrefi og getur viðhaldið hraðanum í lengri tíma.
XFlow™ verndarlag í skónum styrkir skóna og eykur endingu þeirra án þess þó að fórna til þess léttleika eða næmni.
Yfirbyggingin er úr 3D möskvaefni sem tryggir góða öndun og að auki er í skónum svokölluð Power Wire tækni og Wrapping System sem gerir það að verkum að skórinn leggst vel að fæti, umlykur fótinn og tryggir stöðugleika á hlaupum.
Efst á skónum er sokkur sem kemur í veg fyrir að ryk, möl og annað óvelkomið komist ofan í skóinn.
5mm XFlow innri sóli úr 100% endurunnu TPU sem gerir skóna lipra og þægilega á hlaupum.
Ytri sóli skóna er FriXion® White sóli sem veitir frábært grip á fjölbreyttu undirlagi, hvort sem þú tekur til fótanna á malarstíg eða á fjalllendi.
Yfir ristarsvæði er gúmmírönd sem verndar tær og skó þegar farið er yfir grýtta og ójafna kafla.
Helstu eiginleikar:
Hæll: 34mm / Tá: 28mm = 6mm drop
Mynsturdýpt: 4mm - sem gefur gott grip
