0
Hlutir Magn Verð

"Prodigio 2 dömu" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Prodigio 2 dömu thumb Prodigio 2 dömu
Prodigio 2 dömu thumb Prodigio 2 dömu
Prodigio 2 dömu thumb Prodigio 2 dömu
Prodigio 2 dömu thumb Prodigio 2 dömu
Prodigio 2 dömu thumb Prodigio 2 dömu
Prodigio 2 dömu thumb Prodigio 2 dömu
Prodigio 2 dömu thumb Prodigio 2 dömu
Prodigio 2 dömu thumb Prodigio 2 dömu

Prodigio 2 dömu

27.990kr

Vörunúmer: ZFRS122R33P19 RedAza

stærð
- +

Prodigio 2 hlaupaskórnir frá La Sportiva eru fjölhæfir og áreiðanlegir fjallahlaupaskór sem henta jafnt í léttari æfingahlaup sem og krefjandi fjallahlaup. 
Frábær "all-round" hlaupaskór fyrir þá sem vilja stöðugleika, þægindi og power í hverju skrefi - hvert sem undirlagið eða vegalengdin er. 
 
Yfirbyggingin er úr slitsterku og öndunargóðu möskvaefni sem heldur jöfnum hita á fótunum og heldur þeim þurrum á meðan þú hleypur. 
Millisóli og innri sóli eru úr einkaleyfisvörðu XFlow™ efni sem veitir frábæra dempun. Þú færð þannig mjúka lendingu en um leið gífurlegan sprengikraft í fráspyrnu - sem hjálpar þér að viðhalda hraða og vellíðan kílómetra eftir kílómetra. 
 
Ytri sóli er tvöfaldur FriXion® Red og er með 4mm mynstri sem gefur frábært grip. 
Hælsvæði sólans er styrkt sérstaklega og þolir þannig mikið álag á meðan mið- og framhluti sólans veitir hámarks viðnám á krefjandi köflum svo að þú getur hlaupið af öryggi yfir hvaða ójafna undirlag sem fjallahlaupaleiðin þín býður upp á. 
 
Ef þú ert að leita að hlaupaskóm fyrir langar vegalengdir utanvega og ráða við allt á milli rólegra hlaupa yfir í krefjandi keppnishlaupa - þá er Prodigio 2 skór sem þú ættir að skoða vel. 
 
Dropp: 6mm (34/28mm)
Gaddar: 4mm