Ariel Plus 85
83.990kr
Vörunúmer: 10002905 Blk

Osprey Ariel Plus 85
Osprey Ariel Plus 85 er afkastamikill bakpoki hannaður sérstaklega fyrir konur sem fara í langar gönguferðir, fjallaferðir og leiðangra þar sem bera þarf mikinn búnað á þægilegan og öruggan hátt. Stöðugt burðarkerfi með sérstillanlegri baklengd, Fit-on-the-Fly® axlarólum og mjaðmabelti dreifir þunganum jafnt og gerir pokann einstaklega þægilegan, jafnvel með allt að 32 kg burð. Aftakanlegt lok breytist í léttan dagpoka sem hentar vel í styttri dagsferðir frá grunnbúðum.
Helstu eiginleikar
- Sérhannaður fyrir kvenlíkama
- Fit-on-the-Fly® stillanlegt mjaðmabelti og axlarólar fyrir nákvæma aðlögun
- AirScape™ bakkerfi með stillanlegri baklengd sem veitir góðan stuðning og loftflæði
- Aftakanlegt lok breytist í DayLid dagpoka fyrir styttri ferðir
- Regncover fylgir með, framleitt úr bluesign®-vottuðum efnum með PFAS-frírri vatnsvörn
- Stór U-laga rennilás á framhlið veitir greiðan aðgang að aðalhólfi
- Innbyggt hólf fyrir svefnpoka með færanlegri skilrúmsplötu
- FlapJacket™ lokun gerir kleift að nota pokann án efra loksins
- Stór teygjuvasi á framhlið og tveir stórir teygjuvasar á hliðum fyrir vatnsbrúsa eða blautan búnað
- Tveir renndir vasar á mjaðmabelti fyrir síma, nesti eða smáhluti
- Stow-on-the-Go™ festing fyrir göngustafi
- Festingar fyrir tvo ísaxa, svefndýnu og annan útivistarbúnað
- Innri vasi fyrir vatnsblöðru og fjölmargar þjöppunarólar sem halda búnaðinum stöðugum.
Tæknilegar upplýsingar
- Rúmtak: 85 L (WM/L)
- Þyngd: 2,76 kg (WM/L)
- Mælt burðarþol: 18–32 kg
- Mál (WXS/S): 76 × 40 × 38 cm
- Mál (WM/L): 81 × 40 × 38 cm
- Aðalefni: bluesign®-vottað 210D High Tenacity Nylon með PFAS-frírri DWR vatnsvörn
- Áhersluefni: bluesign®-vottað 210D High Tenacity Nylon Honeycomb
- Botnefni: bluesign®-vottað 210D High Tenacity Nylon
- Regncover: Innifalið
- Vatnsblöðrusamhæfni: Já
- Notkun: Langar gönguferðir, fjallgöngur, leiðangrar og ferðalög með þungan búnað.


