TX4 Evo GTX gönguskór
37.990kr
Vörunúmer: ZFAS052G00E35 Carbon
La Sportiva TX4 Evo GTX
La Sportiva TX4 Evo GTX er einstaklega stöðugur og endingargóður aðkomuskór (approach shoe) sem er hannaður fyrir tæknilegar göngur, klettaklifur og krefjandi fjalllendi. Vatnsheld GORE-TEX® Extended Comfort himna heldur fótunum þurrum, á meðan Vibram® Megagrip sóli með Climbing Zone veitir einstakt grip á bæði blautu og þurru undirlagi. Skórinn er einnig hannaður með Resole Platform™, sem gerir kleift að endurnýja sólann og lengja þannig líftíma hans.
Helstu eiginleikar:
- Vatnsheldir skór sem anda vel með - GORE-TEX® Extended Comfort himna
- Vibram® Megagrip sóli með framúrskarandi gripi á fjölbreyttu undirlagi
- Climbing Zone á tá fyrir nákvæma fótfestu á krefjandi undirlagi
- Impact Brake System™ eykur grip og hemlun í bratta
- STB Control System™ veitir aukinn stöðugleika og stuðning á ójöfnu undirlagi
- Nubuck leðuryfirbygging með styrktri távörn og gúmmíkanti allan hringinn
- Mythos Lacing System™ nær langt fram á tá fyrir nákvæma aðlögun
- Resole Platform™ gerir þér kleift að skipta um sóla og lengja endingartíma skósins
- Endurunnin efni í reimum, fóðri og hluta sóla
- Tilvalinn fyrir hefðbundnar göngur, via ferrata, klettaklifur og fjallgöngur
Tæknilegar upplýsingar
- Þyngd: 445 g (per skó)
- Yfirbygging: Nubuck leður með gúmmívörn
- Fóður: GORE-TEX® Extended Comfort
- Miðsóli: MEMlex með TPU styrkingu og STB Control System™
- Ytri sóli: Vibram® Megagrip með Impact Brake System™ og Climbing Zone
- Sólamynstur: 3 mm
- Stærðir: EU 37–47
