Space Warmer 2.0 USB
5.490kr
Vörunúmer: 1830
Space Warmer 2.0 hitagræjan frá Lenz er ein af þessum græjum sem er gott að eiga og vont að vanta. Með Space Warmer getur þú á fljótlegan og þægilegan hátt hitað upp skó og vettlinga áður en þú ferð í þá, einfaldlega með því að stinga tækinu í samband með USB-C.
Hitastýring kemur í veg fyrir að tækið ofhitni, svo að það er engin hætta á ferðum.
Space Warmer er handhægt og fyrirferðarlítið, 20.5 x 5.5 x 2.5 cm - svo að það passar í alla skó og hanska.
Tækið er aukinheldur létt, en það vegur aðeins 300g.
