SeaGo Wave Crest Paddleboard 10.6
89.990kr
Vörunúmer: PB-WAV

Crest Wave Paddleboard frá Seago.
Vandað og sterkbyggt paddleboard sem hentar öllum getustigum. Hvort sem þú ert að skoða þig um við strendur, á ferð niður ár og vötn, eða á leið í lengra ferðalag á bretti, þá er Crest Wave áreiðanlegt og stöðugt bretti sem hentar frábærlega með í öll þín ævintýri úti á vatni.
Brettið er langt og þykkt - eða 150mm þykkt og 3.2metrar að lengd, en þessi stærð gerir brettið sérstaklega stöðugt og áreiðanlegt, ásamt því að það getur borið töluverða þyngd.
Ef þú ert að leita að paddleboard sem er stöðugt, sterkt og getur flutt þig um langan veg - þá er Crest Wave í sérflokki.
Efnið í brettinu er "Fusion drop-stitch" - en inni í efninu eru þúsundir lítilla pólýesterþráða sem tengja innra- og ytra lag efnisins. Þegar brettið er blásið upp þá tognar á þessum þráðum og úr verður hart yfirborð brettisins.
Fusion drop stitch efni er léttara en harðari efni eins og viður eða plast.
Með brettinu fylgir:
Stillanleg ár (í 3 hlutum)
Háþrýstipumpa
Öryggisól um ökkla
Sterkur geymslu- og ferðapoki
Viðgerðarsett
Uggi
Burðarþol: 120kg
