GSI Microlite Javapress
7.990kr
Vörunúmer: 6733 Black
Hvort sem þú ert kaffiunnandi eða elskar góðan tebolla, þá máttu ekki láta þessa nýju drykkjar- og pressukönnu frá GSI framhjá þér fara. Létt og lipur og einföld í notkun, bara nokkur skref í framkvæmd. Byrjar á að setja uppáhalds kaffið/te þitt í botninn og hellir svo heitu vatni. Síðan er bara að hræra og leyfa því að sitja í 3-5 mínútur. Pressan er síðan sett í og ýtt niður. 1-2-3 og þú ert komin með rjúkandi heitan bolla á nokkrum mínútum! 18/8 ryðfrítt stálið tryggir góða endingu og hreinleika. Stúturinn lokast vel til þess að viðhalda hitanum vel, þegar kaffi eða annað álíka er í könnunni. Botninn er stamur svo hann renni síður og passar í flesta drykkjarhaldara í bílum.
- Botn með grip svo hann renni síður
- Magn: Rúmar 423 ml
- Einstaklega sniðug hönnun
- Gert úr 18/8 ryðfríu stáli (þolmikið og hreinleiki)
- Lekavörn á stút
- Heldur ýmsu köldu eða heitu
- Auðveld í notkun