Drybag Versa Compression poki 13L
7.290kr
Vörunúmer: 7640277848658

Versa compression þurrpoki frá Exped. Vatnsheldur þurrpoki með láréttum compression ströppum og flötum ventli til þess að losa út auka loft.
Pokinn er 100% vatns- og rykheldur og hentar vel sem geymsla fyrir t.d. svefnpoka, fatnað og annað sem betra er að halda þurru.
Þrennir strappar eru á pokanum sem nota má til þess að þjappa innihaldi pokans í minnstu mögulegu stærð til þess að spara pláss og minnka fyrirferð.
Versa þurrpokinn er fjölhæfur og áreiðanlegur ferðafélagi, en það er einnig hægt að nota ventilinn á pokanum til þess pumpa lofti í EXPED dýnuna þína.
Pokinn er í ljósum lit að innan, svo að þú hefur góða yfirsýn yfir innihaldið.
Pokanum er lokað með því að rúlla toppi hans niður og festa með smellum.
Sterkt efnið í pokanum er úr endurunnu 70D nylon efni sem er PFAS-frítt og bluesign® vottað.
Pokinn fæst í þrennum stærðum og litum: 13L, 19L og 36L.
Þyngd: 13L: 82g, 19L: 100g, 36L: 134g
Ummál: 13L: 42 x 20cm, 19L: 52 x 22cm, 36L: 65 x 28cm
