ADV Nordic Training Jacket dömu
23.990kr
Vörunúmer: 1915316-444000 Pink
ADV Nordic Training gönguskíðajakkinn er sérstaklega hannaður fyrir ákafa skíðagöngu í köldu veðri. Þessi tæknilegi gönguskíðajakki er gerður úr vind- og vatnsheldu efni með léttri einangrun að framan og mjúku jersey efni í baki og undir ermum - allt til þess að halda líkamshitanum í jafnvægi á meðan þú tekur á því. Framhliðin er aukinheldur fóðruð með flísefni sem hrindir frá sér raka.
Þægilegur og flottur jakki í gönguskíðaferðirnar í vetur!

