0
Hlutir Magn Verð

"Lumiko Zip flíspeysa" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Lumiko Zip flíspeysa thumb Lumiko Zip flíspeysa

Lumiko Zip flíspeysa

15.990kr

Vörunúmer: 005360 TopazMaj

stærð
- +

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

Aðsniðin létt flíspeysa sem er tilvalin fyrir göngur, fjallaferðir og almenna útiveru. Ein af léttari flíspeysunum frá Mountain Equipment, sem státar af góðri öndun og er auk þess hlý. Létt og pakkanleg í allan farangur og hentar vel bæði sem innra lag á köldum dögum eða létt millilag þegar hlýrra er. 
Gerð úr 93% endurunnum efnum og er mjúk viðkomu og hrindir frá sér vætu. Ef peysan blotnar þá er hún fljót að þorna. Saumar eru þægilegir við húð, jafnvel þó þú sért með bakpoka eða í klifurbelti. 
Herrasniðið er hannað til þess að veita stílhreint útlit og fara vel með öðrum flíkum, t.d. þegar notuð undir skel eða úlpu. Góður teygjanleiki er í efninu sem eykur þægindi til muna og þú upplifir frelsi í öllum hreyfingum. 
Renndur vasi er að framanverðu á efri hluta peysunnar, sem gefur góð tækifæri til þess að hleypa líkamshita frá ef átök eru mikil eða renna fljótt upp ef þú ert lengi í skugganum og finnur til kulda. Renndur brjóstvasi er til staðar fyrir nauðsynlega smáhluti á borð við símann eða orkustykki. 

  • Létt flíspeysa þegar þú vilt hlýleika og þægindi
  • Herrasnið sem hentar miklum hreyfanleika
  • Saumar fara þægilega við húð
  • Djúpur YKK® vasi að framanverðu fyrir góða loftun þegar þörf er á
  • Renndur brjóstvasi
  • Þyngd: 230gr