0
Hlutir Magn Verð

"Ariel Plus 70" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Ariel Plus 70 thumb Ariel Plus 70
Ariel Plus 70 thumb Ariel Plus 70
Ariel Plus 70 thumb Ariel Plus 70
Ariel Plus 70 thumb Ariel Plus 70
Ariel Plus 70 thumb Ariel Plus 70
Ariel Plus 70 thumb Ariel Plus 70
Ariel Plus 70 thumb Ariel Plus 70
Ariel Plus 70 thumb Ariel Plus 70
Ariel Plus 70 thumb Ariel Plus 70
Ariel Plus 70 thumb Ariel Plus 70

Ariel Plus 70

75.990kr

Vörunúmer: 1000290-NiJung

stærð
- +

Ariel Plus 70 er dömuútgáfan af Aether Plus 70 pokanum. Gríðarlega öflugur fjallgöngupoki með mikla burðargetu sem uppfyllir þarfir þeirra sem vilja sterkan poka. Einn af stærstu fjallgöngupokinn fyrir konur sem hentar vel óháð árstíð. Ariel Plus 70 hentar vel í regni, snjó eða sól og mun auðvelda ferðalag eigandans til muna, hvort sem um er að ræða styttri eða lengri ferðir. 

Með stillanlegu baki og mjaðmabelti er hægt að stilla pokann þannig að hann passi þér sem best. Þegar pokinn er rétt stilltur á þig fer 80% þyngdarinnar á mjaðmirnar og 20% þyngdarinnar á axlirnar. Það þýðir að minni líkur eru á verkjum í öxlum og baki meðan á göngu stendur. Best er að hagræða þyngstu hlutunum sem með eru í för neðst í pokann. Auðvelt aðgengi er að öllu dótinu í pokanum þar sem að þú getur opnað hann á þrjá vegu, þ.e. að ofan, fyrir miðju og að neðan. Stow-on-the-Go™ festingar fyrir göngustafi gera þér kleift að setja göngustafina í og úr sjálf án þess að leggja pokann niður eða biðja vin um hjálp. Vatnsheld yfirbreiðsla kemur að góðum notum í rigningu og blautu veðri. Þú þarft þó ekki að örvænta ef þú lendir í vindhviðum vegna þess að yfirbreiðslan er áföst, enda veitir kannski ekki af hérna á Íslandi.

  • Frábær 70 lítra fjallgöngupoki
  • Sérhannaður fyrir konur
  • Vatnsheld yfirbreiðsla
  • Dýnufestingar neðst á pokanum
  • Hægt að fjarlægja mittisbeltið og móta eftir eiganda pokans
  • Airscape™ bak sem tryggir góða öndun og aukin þægindi
  • Stillanleg brjóstól að framan með áfastri neyðarflautu
  • Stow-on-the-Go™ festingar fyrir göngustafi, hægt að festa rækilega að ofan og neðan
  • Tvær ísaxafestingar bæði að ofan og að neðan, allt er því vel fest niður til að hámarka bæði öryggi og þægindi. 
  • Frábært aðgengi að öllum búnaði pokans: að neðan, að ofan og fyrir miðju. 
  • Djúpir og góðir hliðarvasar úr teygjuefni, öðru megin er strappi sem hægt er að þrengja
  • Vasi að framan tilvalinn fyrir smáhluti sem gott er að lofta um, t.d. sokka.
  • Topphólf sem hægt er að fjarlægja og nota sem dagpoka
  • Netapoki er í topploki þar sem er festing fyrir lykla
  • Endurskin í merkingum
  • Áföst regnslá
  • Mjaðmaól pokans er með strekkingu báðum megin, pokinn situr því vel og smellan er fyrir miðju (aukin þægindi)
  • Góðir vasar á mjaðmabelti
  • Þyngd: 2,4 kg
  • Stærð: (l x b x d): 75 cm x 38 cm x 34 cm

 


Tengdar vörur

46.990kr
Superalp NBK GTX
75.990kr
Aether Plus 70 EclGrey