0
Hlutir Magn Verð

"Grit 1 FR" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Grit 1 FR thumb Grit 1 FR
Grit 1 FR thumb Grit 1 FR
Grit 1 FR thumb Grit 1 FR

Grit 1 FR

37.990kr

Vörunúmer: 91210MOOFR

 
Ferrino
Uppselt

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

Grit 1 FR er ofurlétt og vandað eins manna tjald sem er eingöngu 1,30kg með öllu og því tilvalið fyrir ævintýri sumarsins. Tjaldið er úr sterku 100% endurunnu pólýester efni með Ribstop áferð sem hindrar að langar rifur myndist í efninu ef ske kynni að gat komi á efnið. Auðvelt í uppsetningu svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur að vera lengi að setja tjaldið upp. Pakkast niður í 12x38 cm og auðvelt að koma því fyrir í bakpokanum.

Tjaldhiminn: Ribstop eldtefjandi 100% endurunnið pólýester 70D efni, 85 g/m2,  með límdum saumum, 3000 mm/cm2 vatnsvörn
Innra tjald: Eldtefjandi efni með flugnaneti
Tjaldbotn: Eldtefjandi endurunnið pólýester 70D, 95g/m2,  með límdum saumum, 8000 mm/cm2 vatnsvörn, þriggja laga vatnsvörn í hornum á botninum. 
Súlur: Úr áli (7001 T6), tvær stangir í sitthvorum litnum til að auðvelda uppsetningu 

  • Eins manna,  kúlulaga (e. dome)
  • Gert úr eldtefjandi efnum
  • Límdir saumar í gólfi og tjaldhimni
  • Þriggja laga uppbygging sem styrkir hornin á tjaldbotni
  • Flugnanet á inngangi í innra tjaldi
  • Súlur úr hertu áli (7001 T6 dúrál) í sitthvorum litnum til að auðvelda uppsetningu
  • Tjaldhælar úr sexhyrndu áli (léttir og sterkir)​​
  • Lofttúða
  • Einn inngangur
  • Fortjald nær mest 60 cm frá innra tjaldi
  • Vasar í innra tjaldi fyrir smádót
  • Krókur í innra tjaldi fyrir ljós
  • Viðgerðarsett
  • Hámarks þyngd: 1,30 kg
  • Lágmarks þyngd: 1,20 kg
  • Lengd: 230 cm
  • Mesta hæð: 80 cm
  • Pökkuð stærð: 12 x 38 cm