Campingaz CV470 Plus gashylki
1.995kr
Vörunúmer: C-2179540
Campingaz CV470 Plus gashylki. Tilvalið fyrir útilegur, í garðinn, á svalirnar, á veröndina eða í gönguferðir.
Einfalt í notkun
Með sjálfþéttandi öryggisloka, gashellunni er tyllt á stútinn og snúið þar til smellur heyrist - og þá er tengingin orðin þétt og örugg til notkunnar.
Öryggisbúnaður
Hægt er að aftengja gashelluna og setja lokið aftur á stútinn, jafnvel þó hylkið sé ekki alveg tómt. Upplagt ef þú vilt setja annarskonar gashellu eða brennara á hylkið - eða einfaldlega til þess koma því betur fyrir í bakpokanum að notkun lokinni.
Tæki sem passa á hylkið
Öll ásmellt tæki frá Campingaz t.d. Party Grill, 400SG gashelluborð, Bluet Micro gashella og Base camp lid gashelluborð.
- Smellufesting
- Þyngd: 710 g
- Rúmtak/gas: 450 g
- Butane/Propane (80/20)
- Stærð: 11 x 14 cm