Meteora 4
Vörunúmer: 99124EMM BRed
Rúmgott og þægilegt fjölskyldutjald fyrir fjóra frá Ferrino. Meteora 4 fjölskyldutjaldið er tilvalið fyrir útileguna, með rúmgott svefnrými, það er auðvelt í uppsetningu og með tveimur inngöngum. Svefnálman er 240 cm á breidd og 210 cm á lengd en full breidd á tjaldinu er 260 cm. Innangengt að framan og á hliðinni með vatnsheldu gólfi og gegnsæju neti fyrir glugga. Bogalaga lögun tjaldsins gefur meiri lofthæð en tjöld sem eru þríhyrningslaga en full lofthæð er 175 cm. Auðvelt í uppsetningu en innra tjaldið er hengt á súlurnar og tjaldsúlurnar eru sjáanlegar að utan. Ytri byrði tjaldsins er gert úr sterku 70D pólýester efni sem er 2000 mm/cm2. Innra tjaldið er gert úr vatnsfráhrindandi efni sem andar jafnframt vel. Svefnálmunni er skipt í tvö rými með millivegg og með margra punkta línukerfi er hægt að tryggja tjaldið sérstaklega í miklum vindi.
Efni:
Tjaldhiminn: 70D Honey pólýester efni sem er húðað með 75g/m2 hitaeinangrun og 2000 mm/cm2 vatnsvörn
Innra tjald: Vatnsfráhrindandi pólýester efni sem andar vel, allt að 2.500mm/cm2 vatnsvörn
Tjaldbotn: >10.000 mm/cm2 vatnshelt polyethylene
Súlur: 3 jafnstórar stangir sem eru úr trefjaplasti, bæði ytri og innri stangir
- 2000 mm/cm2 vatnsvörn á tjaldhimninum
- Límdir saumar á himni og botni
- Flugnanet í inngangi
- Margra punkta stög sem trygging
- Lofttúða
- Tveir inngangar
- Vasar í innra tjaldi til að geyma smádót
- Viðgerðarsett fylgir með
- Styrking á álagssvæðum
- Milliveggur í svefnálmu sem hægt er að fjarlægja
- Krókur fyrir ljós í innra tjaldinu
- Súlur úr fíber efni
- Stálhælar
- Heildarlengd: 420 cm
- Heildarbreidd: 260 cm
- Hæð: 175 cm
- Pökkuð stærð: 55x25x25 cm
- Þyngd: 9,4kg