BLIZ Peak Photocromic
Vörunúmer: 52109 MBlk
Vönduð og gæða sólgleraugu sem eru frábær fyrir vetrarsportið, fjallaferðina og jöklaferðir. Sterkbyggður rammi og rispufrí linsa tryggja frábæra sýn allan daginn svo þú getir notið ferðarinnar. Nano Optics™ Photochromic linsa er litaskiptandi gler með innbyggða vörn gegn móðusöfnun. Linsan verður sjálfkrafa dekkri eða ljósari eftir styrkleika sólargeislanna í umhverfinu (UV geislum), færir þér sem sagt þá vörn sem þú þarft hverju sinni út frá birtustigi umhverfisins. Linsan hefur birtustuðla á bilinu 2 til 4. Það þýðir að þú færð aukna vörn gegn sólargeislum, þegar þess þarf, þegar sólin er sem hæst (stuðull 4). Frábært val á íþróttagleraugum fyrir bæði byrjendur og lengra komna. Sólgleraugun eru með sterka linsu, 100% UV vörn og á hliðunum er vörn gegn sólarljósi, sem hægt er að fjarlægja sé þess óskað. Ramminn er gerður úr Grilamid (TR90) sem veitir þolmikla, sterkbyggða og létta umgjörð. Þyngd gleraugnanna er aðeins 27gr og þau eru með stillanlegri nefklemmu og sveigjanlegum endum á spöngum. Gleraugun eru með stamt efni á endum spanganna og hliðarpanelinn er hægt að fjarlægja sé þess óskað.
- Birtustuðull (CAT): 2-4
- Ljóshleypni: 35 - 6%
- Matt Black
- Linsa: Brown w Blue Multi Photocromic
- Stærð: M/L
- 100% vörn gegn útfjólubláum geislum
- Sterkbyggð og rispufrí linsa
- Sveigjanleg nefklemma
- Sveigjanlegir endar á spöngunum
- Gleraugnaól
- Stamt efni á endum spanganna fyrir aukið grip og þægindi
- Innifalið í öskju: Geymslupoki
- Þyngd: 27 gr